Heim (Eurovision – Ísland 2018)

Heim (Eurovision – Ísland 2018)
(Lag / texti: Þórunn Erna Clausen / Ari Ólafsson

Í augum þeirra sem mæta mér
leynist mósaík minninga.
Óteljandi myndir af gleði og sorgum,
af þeim aðeins lítil brot þú sérð.

Ég leita að leiðinni heim,
við leitum að leiðinni heim,
það heyja allir sálarstríð.
Í einmanaleikans byl
við getum öll hjálpað til,
þá lifnar þitt hjarta við.

Á hlýrri sumarnóttu
fagurt brosið dáleiddi mig.
Augun full af skilningi, ástríðu og ótta,
ótta við að finna aftur til.

Ég leita að leiðinni heim,
við leitum að leiðinni heim,
það heyja allir sálarstríð.
Í einmanaleikans byl
við gætum öll hjálpað til,
þá lifnar kannski hjartað við.

Ef gæfan blæs okkur í hag,
ég læt sem ekkert vont sé að
en stundum dimmir hratt
og myrkrið hylur dag.

Ég leita að leiðinni heim,
við leitum að leiðinni heim,
það heyja allir sálarstríð.
Í einmanaleikans byl
við getum öll hjálpað til,
þá lifnar kulið hjarta við.

Við saman gætum hjálpað til.

[af plötunni Ari Ólafsson – Heim [ep]]