Hírósíma

Hírósíma
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Heill þér faðir alheimsins,
seg þú mér,
vorum við ekki fædd þér til dýrðar?
Eða voru forfeður mínir ekki nógu trúaðir?

Ekkert svar,
ekkert hljóð bara blóð
og eftirköstin frá Hírósíma.

Hættan eykst með hverri mínútu,
dauðinn fer á stjá.
Klofvega situr hann á atómbombu,
hún fer ekki framhjá.

Keflavík, Grindavík, Vogar,
Reykjavík, Þorlákshöfn loga.
Feður og mæður,
börn ykkar munu stikna.

Það er stutt í það
að storknað hraun mun renna á ný,
það er stutt í það
að jöklar okkar muni breytast í gufuský.

Hvert barn sem fæðist í dag
á minni og minni möguleika að lifa.
Hver þrítugur maður í dag
er með falsaðan miða.

Þið munið öll,
þið munið öll,
þið munið öll deyja.
Þið munið öll,
þið munið öll,
þið munið öll deyja.
Þið munið stikna,
þið munið brenna,
þið munið stikna,
þið munið brenna.

Feður og mæður,
börn ykkar munu stikna.

Dauðinn situr á atómbombu,
hann fer ekki framhjá.

[m.a. á plötunni Utangarðsmenn – Geislavirkir]