Hrognin eru að koma

Hrognin eru að koma
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Hrognin eru að koma, gerið kerin klár.
Hrognin eru að koma, gerið kerin klár.
Setjið dælurnar í samband, takið svo seglin frá.
Hrognin eru að koma, gerið kerin klár.

Vinnið nógu mikið, peninga munuð þið fá.
Vinnið nógu mikið, svo ykkur verki niður í stóru tá.
Það er hagur þeirra að ykkur flökri,
þegar hugsun ykkar fer á stjá.
Vinnið nógu mikið, peninga munuð þið fá.

Uppi‘ á verbúð blómstrar menningin,
komið og þið munuð sjá
slagsmál, ríðingar, fyllerí,
Jack London horfa á.
Engin pólitík, slagyrði eða Maómyndir veggjum á,
þá færðu reisupassann vinur minn.
Staðnum verður, staðnum verður frystur frá.

Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn.
Ykkar er jú hagurinn, hagurinn ekki hússins.
Það vita þeir og þjarma á ykkur refsibónusinn.
Það er, það er allur munurinn.

[af plötunni Bubbi Morthens – Ísbjarnarblús]