Húsið og ég (mér finnst rigningin góð)
(Lag / texti: Rúnar Þórisson, Rafn Jónsson, Helgi Björnsson og Örn Jónsson / Vilborg Halldórsdóttir)
Húsið er að gráta
alveg eins og ég.
Það eru tár á rúðunni
sem leka svo niður veggina.
Gæsin flýgur á rúðunni
eða er hún að fljúga í auganu á mér.
Ætli húsið gæti látið sig dreyma,
ætli það fái martraðir.
Hárið á mér er ljóst,
þakið á húsinu er grænt,
ég Íslendingar – það Grænlendingur.
Mér finnst rigningin góð …
Einu sinni fórum við í bað
og ferðuðumst til Bali,
við heyrðum í gæsunum og regninu.
Það var í öðru húsi,
það var í öðru húsi,
það var í öðru húsi,
það á að flytja húsið í vor.
Mér finnst rigningin góð …
[m.a. á plötunni Grafík – Sí og æ]














































