Hvert fer fólkið?

Hvert fer fólkið?
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Fjörðurinn hófspor full af vatni.
Fjöllin hálfmálaðir veggir.
Í dag er loftið blátt.
Undir malbikinu morknaðir leggir
hrossa sem eitt sinn báru búslóð,
börn og óléttar konur.
Faðir og sonur.
Hvítt og grátt.

Bíllinn er fullur af fólki og orðum
sem flæða hljóðlaust innra.
Varir sem strik.
Í hverri viku varð umslagið þynnra
sem geymdi launin og langa daga
og draum dimmra nátta,
sorgir án sátta,
rigningu og ryk.
Hvert fer fólkið þegar þorpin loka?

Inn í þokuna gráu bak við fjöllin bláu.
Og netin þau fanga aðeins pappír og poka
þar sem þau hanga
haustdaga langa.

[af plötunni Bubbi Morthens – Arfur]