Í næsta lífi

Í næsta lífi
(Lag / texti: XXX Rottweiler hundar / Ágúst Bent Sigbertsson og Lúðvík Páll Lúðvíksson)

Sá nashyrningahjörð
í amerískum fötum
þambandi úr glösum,
standandi í röð í
Bankastræti,
dýragarðabörn
klædd í Adidas
með jónur sem að líta út eins og fajitas
er þetta real life?
Ég er fucked,
verð að banka í strætið,
bærinn hann iðar af lífi
eins og smábarn með njálg,
allir að fá sér
og spólgraðir táningar
sem vaða í ógrynni klám upp að hnjám (ojj)
og ég er tæpur
sit með munnræpu á knæpu,
mæðurnar læsa‘ inni dætur
sem læsa‘ inni mæður
og báðar þær læðast svo hingað um nætur.

Djöfull er ég nettur,
ég er nettasti náunginn á plánetunni jörð,
þarf alltaf að vera vín,
að sjálfsögðu nörd,
svo mikið af drykkjarvörum á mínum vörum
að ég verð að fara á börum út af börum
en mér er sama
því að
satt best að segja er ennþá gaman,
því að
ég er ennþá að þamba tequila,
ég er ennþá á fokking lífi, mamma mía
með bein og fleira í nefinu.
Veist að ég stend mig í stykkinu
þar til ég hrekk upp, en dömpið svo líkinu
í tunnunni, kompunni, portinu á Prikinu.

Ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig,
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig,
svo fokking farinn, það næst ekki í mig,
endilega reyndu aftur í næsta lífi (kannski í næsta lífi aumingi!).
Næsta lífi, reyndu aftur í næsta lífi
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig,
svo fokking farinn, það næst ekki í mig (kannski í næsta lífi aumingi!).

Áður en þú veist að við neyslan
hættu að vera veisla,
beislaðu púkann bruv‘, beislaðan
áður en þú veist að við neyslan
hætt að vera veisla,
beislaðu púkann bruv‘, beislaðan.

Sá nashyrningahjörð
í amerískum fötum
þambandi úr glösum,
standandi í röð á
Laugarveginum,
hér er bara hlaupið með nautnunum
miðað við þá allra blautustu
þá það mætti halda að það væri
laug á veginum
en þetta eru engar hyllingar,
fokk it, ég judge‘a ekki
en ég er líka til í allt,
spinnegal unglingar
og fullorðnir villingar.
Það skemmir ekki við,
við að skvetta smá af bensíni á bálið mitt,
funheitur, alelda, sódóma, Stefán í sálinni.

Sá nashyrningahjörð
klukkan rassgat
en hún er ekki‘ á leiðinni neitt neitt
rymjandi og brosandi eins og eimreið,
ógnandi þeim sem að leið um Hverfisgötuna,
það er meittlað í stein,
þegar maður er meyr
fær maður sér meir,
þegar maður er meyr
fær maður sér meir,
svo deyr
og hverfur í götuna
en það er lífshlaup
sem myndi ekki bragðast vel
svo ég blanda mér bara annan hanastél,
fer á diskótek og disco tek.
Ég neita að haga mér,
mamma sagði við mig
gakkt út um gleðinnar dyr,
ekki drekka of mikið,
ekki sofna í sigtið,
sorry mamma, sparka upp hurðinni
og byrja að hella í mig.

Ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig,
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig,
svo fokking farinn, það næst ekki í mig,
endilega reyndu aftur í næsta lífi.
Næsta lífi, reyndu aftur í næsta lífi,
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig,
svo fokking farinn, það næst ekki í mig.

Ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig,
ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig,
svo fokking farinn, það næst ekki í mig,
endilega reyndu aftur í næsta lífi (kannski í næsta lífi aumingi!).
Næsta lífi, reyndu aftur í næsta lífi.
Ég er svo fokking farinn að það næst ekki í mig,
svo fokking farinn það næst ekki í mig (kannski í næsta lífi aumingi!).

[af smáskífunni XXX Rottweiler hundar – Í næsta lífi [ep]]