Í síðasta skipti

Í síðasta skipti
(Lag og texti: Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Ásgeir Orri Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson)

Ég man það svo vel.
Manstu það hvernig ég sveiflaði þér
fram og tilbaka í örmunum á mér,
ég man það, ég man það svo vel
því þessar minningar, minningar kvelja mig, kvelja mig,
gerðu það, leyf mér að leiða þig
í síðasta skipti.

Haltu í höndina á mér og ekki sleppa,
sýndu mér aftur hvað er að elska
og o-o-o-o
segðu mér
að þú finnir ekkert og enga neista
og slokknað í þeim glóðum sem brunnu heitast,
þá rata ég út.

Ég man það svo vel,
manstu það hvernig þú söngst alltaf með.
Hver einasta bílferð sem tónleikar með þér.
Ég man það, ég man það svo vel.
Já, þessar minningar, minningar kvelja mig, kvelja mig,
gerðu það, leyf mér að leiða þig
í síðasta skipti.

Haltu í höndina á mér og ekki sleppa,
sýndu mér aftur hvað er að elska
og o-o-o-o
segðu mér
að þú finnir ekkert og enga neista
og slokknað í þeim glóðum sem brunnu heitast,
í síðasta skipti –

Haltu í höndina á mér og ekki sleppa,
sýndu mér aftur hvað er að elska
og o-o-o-o
segðu mér
að þú finnir ekkert og enga neista
og slokknað í þeim glóðum sem brunnu heitast,
þá rata ég út.

[m.a. á plötunni Friðrik Dór – Segir ekki neitt]