Kveðja

Kveðja
Lag / texti Kristján Kristjánsson KK og Þorleifur Guðjónsson / Kristján Kristjánsson KK)

Máni blár,
mig langar að biðja þig
um kveðju mér frá.

Norður í hafi er ein
sem prýðir svo fögur að sjá,
segðu henni þá.

Mig langar svo að kyssa þig,
langar að kyssa þig,
hvað ég sakna þín,
ég sakna þín.

Máni blár,
langar að biðja þig
um kveðju á ný.

Norður í hafi er ein
sem prýðir svo fögur og hlý,
bíður mín.

Ef þú sérð hana
sendu kveðju,
geislandi ljós frá mér,
frá mér til þín.

Máni blár,
mig langar til að biðja þig
um kveðju frá mér.

Norður í hafi er ein
sem prýðir, svo fögur að sjá,
segðu henni já.

Langar svo að kyssa þig,
langar að kyssa þig.

Hvað ég sakna þín,
svo fögur að sjá.
Svo fögur að sjá.

[af plötunni KK band – Hótel Föroyjar]