Laus og liðugur (Sigurður er sjómaður)

Laus og liðugur (Sigurður er sjómaður)
(Lag / texti: Jónatan Ólafsson / Númi Þorbergs og Bubbi Morthens)

Sigurður er sjómaður,
sannur Vesturbæingur.
Alltaf er hann upplagður,
út að skemmta sér.

Dansar hann við dömurnar,
dásamaður alls staðar.
Með ungar jafnt sem aldraðar
út á gólfið fer.

Dansar hann á tá og hæl,
Vínarpolka, vals og ræl,
þolir ekki vol né væl,
vaskur maður er.

Sigurður var sjómaður,
hrikalega laglegur,
en núna er Siggi lamaður
hjólastólnum í.

Varð hann undir trollhlera
er burtu vildi tóg skera.
Engar fær hann bæturnar,
hjólastólnum í.

[af plötunni Utangarðsmenn – Geislavirkir]