Masi
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Í svörtum leðurstól
situr hann sveittur og feitur
með loðinn bjór.
Í hvítri skyrtu með ferleg tól
og krumlan sem heldur um bjórinn
er hárlaus og stór.
Á daginn er hann konungur
sem drottnar og ríkir einn,
athugar hvern víxil,
er viðkomandi hreinn?
Slitin vömbin er falin í eldtraustum skáp,
hvort sem þú trúir því eða ekki
var hann einn á bát.
Á kvöldin er þreyttur
og afsalar henni sitt vald,
nakin stúlka með svipu í hendi,
á peningaveski hefur lagt hald
og frúin kannar hvern klofháan hól
í suðrænum sandi.
Í svefnherberginu hangir í gylltum ramma
mynd af dóttur hans sem stúderar í Frans
klassískar bókmenntir, sögu, listir og dans.
Sonurinn er í New York,
stundar næturlífið með elegans.
Þegar stúlkan er farin
hann situr kaldur og sljór
með visin bleikrauð tól
og hundraðþúsundkallinn
skipti um eiganda og hló.
[af plötunni Bubbi Morthens – Ísbjarnarblús]














































