Með hækkandi sól (Eurovision – Ísland 2022)
(Lag og texti: Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir)
Öldurót í hljóðri sál.
Þrautin þung umvafin sorgarsárum.
Þrá sem laðar, brennur sem bál.
Liggur í leyni leyndarmál – þei þei.
Í ljósaskiptum fær að sjá
fegurð í frelsi sem þokast nær.
Þó næturhúmið skelli á
og ósögð orð, hugann þjá – þei þei.
Í dimmum vetri hækkar sól.
Bræðir hjartans klakabönd svo hlý.
Í dimmum vetri vorið væna,
vermir þitt vænghaf á ný.
Skammdegisskuggar sækja að.
Bærast létt með hverjum andardrætti.
Syngur í brjósti lítið lag,
breiðir úr sér og andvarpar – þei þei.
Í dimmum vetri hækkar sól.
Bræðir hjartans klakabönd svo hlý.
Í dimmum vetri vorið væna,
vermir þitt vænghaf á ný.
Og hún tekst á flug,
svífur að hæstu hæðum.
Og færist nær því
að finna innri ró.
Í dimmum vetri hækkar sól.
Bræðir hjartans klakabönd svo hlý.
Í dimmum vetri vorið væna
vermir þitt vænghaf á ný.
[m.a. á plötunni Söngvakeppnin 2022 – ýmsir]














































