Minn hinsti dans (Eurovision – Ísland 1997)
(Lag og texti: Páll Óskar Hjálmtýsson og Trausti Haraldsson)
London, París, Róm
urðu orðin tóm.
Gekk þann gyllta breiða,
blindaður af ást.
Falskir kunningjar,
snerust um mig einan.
Fékk mér kavíar,
núna er allt um seinan
því ég stíg minn hinsta dans
og ég kveð mitt líf með glans
en ég iðrast aldrei neins,
iðrast aldrei.
Kristals kampavín,
perlur postulín.
Demantar í matinn,
ást í eftirrétt.
Ef ég elska’ í dag,
blöðin birta á morgun,
fæ mér freyðibað,
drekki mínum sorgum
og ég stíg minn hinsta dans
og þannig kveð mitt líf með glans
en samt iðrast ég aldrei neins,
iðrast aldrei.
Allt sem ég fæ í dag,
farið burt á morgun
svo ég stíg minn hinsta dans
og þannig kveð mitt líf með glans
en samt iðrast ég aldrei neins,
iðrast aldrei.
[m.a. á plötunni Páll Óskar – Seif]