Óðinn
(Lag / texti: Skálmöld – Snæbjörn Ragnarsson)
Loki heitir, Óðinn opni
augu Miðgarðsvætta.
Oki undir, vondu vopni
veldur, engra sætta.
Ég er Óðinn, ég er Óðinn,
ég er sá sem les í ljóðin
Hilmar Baldursson.
Finnum duginn, ekki efast,
alltaf sýna gæsku.
Vinnum þegar sorgir sefast,
sjaldan beitum græsku.
Ég er Óðinn, ég er Óðinn,
ég er sá sem les í ljóðin.
Hilmar Baldursson.
Sofa skaltu, aldrei ata
árar sálu tæra.
Lofa Óðin, heimskir hata.
Heiðna sinnið næra.
Ég er Óðinn, ég er Óðinn,
ég er sá sem les í ljóðin.
Hilmar Baldursson.
[af plötunni Skálmöld – Börn Loka]














































