Parísarhjól
(Lag og texti: Þormóður Eiríksson og Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir (GDRN) / Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir (GDRN)
Því ég snýst
eins og parísarhjól,
þú snýrð öllu á hvolf.
Og ég snýst
eins og jörð kringum sól
og ég fæ ekki nóg.
Hring eftir hring
með þig á heilanum.
Þú skilur svo vel
hvað ég er að tala um.
Dag eftir dag,
ég finn að hjartað tekur kipp,
þegar ég horfi á þig
þá finnst mér gott að vera til.
Því ég snýst
eins og parísarhjól,
þú snýrð öllu á hvolf.
Og ég snýst
eins og jörð kringum sól
og ég fæ ekki nóg.
Því ég snýst.
Ahhhh.
Snýst.
Ahhhh.
Ég horfi til þín
þegar ég er áttavillt.
Sýndu mér leið,
alla leið inn á við.
Dag eftir dag
þú gefur öllu nýjan lit
því heimurinn
hann snýst í hring í kringum þig.
Því ég snýst
eins og parísarhjól,
þú snýrð öllu á hvolf.
Og ég snýst
eins og jörð kringum sól
og ég fæ ekki nóg.
Því ég snýst.
Ahhhh.
Snýst.
Ahhhh.
Hvernig var það að vera til
þegar þú varst ekki mér við hlið?
Því heimurinn
hann snýst í hring í kringum þig.
Því ég snýst
eins og parísarhjól,
þú snýrð öllu á hvolf.
Og ég snýst
eins og jörð kringum sól
og ég fæ ekki nóg.
Því ég snýst.
Ahhhh.
Og ég snýst.
Ahhhh.
[af smáskífunni GDRN – Parísarhjól [ep]]














































