Plágan

Plágan
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Ég læðist milli veggja,
er úti fyrir dagur eða nótt.
Dauðir lifandi leggja,
plágur og fararsótt.

Ég læðist milli veggja,
þetta skeði svo fljótt.
Ég læðist milli veggja,
hárlaus hryllingur með kýlasótt.

Dimmrauð sól, gjöreydd borg,
tröllvaxnar rottur skríða um torg.
Ég öskra mig hásan, ég öskra mig rauðan,
ég spyr er líf eftir dauðann?

Ég læðist milli veggja,
ég heyri tístið dag og nótt.
Skoltar saman skella,
úr öllum áttum að mér sótt.

Ég læðist milli veggja,
er úti fyrir dagur eða nótt.
Dauðir lifandi leggja,
plágur og fararsótt.

[af plötunni Bubbi Morthens – Plágan]