Poppstjarnan

Poppstjarnan
(Lag / texti: Mike Pollock og Bubbi Morthens / Bubbi Morthens)

Í kvöld hann á að fara á stóra sviðið,
hann ferðast bara á fyrsta klassa.
Á bak við sviðið bíður lítil stúlka
með falsaðan passa.

Hér kemur hann klæddur í silki,
tjásuklipptur með kókaín í hylki,
firrtur raunveruleikanum, týndur,
stjörnukomplex, píndur.

Þeir búa til sextákn, poppstjörnur,
sem klæðast glimmeri á sviði og vaða reyk.
Hann vill ekkert skilja, hann vill ekkert sjá,
hann er í stjörnuleik.

Að morgni eftir nautnanótt hann vaknar,
í lofti hanga hrímgrá tóbaksský,
örvandi lyfi í sig hakkar
til að komast buxurnar í.

Náhvítur með bláa bauga,
spegillinn er hans stóra synd.
Sannleikanum gefur illt auga
því poppstjarnan er blind.
Því poppstjarnan er blind.

[af plötunni Utangarðsmenn – Geislavirkir]