Riddari götunnar
(Lag / texti: Björgvin Halldórsson / Björgvin Halldórsson og Þórhallur Sigurðsson (Laddi))
Rennur af stað ungi riddarinn,
rykið það þyrlast um slóð.
Hondan hans nýja er fákurinn,
hjálmurinn glitrar sem glóð.
Tryllir og tætir upp malbikið,
titrar og skelfur allt hér.
Reykmettað loftið, þá vitið þið
er riddari götunnar fer.
Ég hef alltaf verið
veik fyrir svona strák
sem geysist um á mótorfák
og hræðist ekki neitt.
Aftan á hjóli hans situr snót,
sú sem hann elskar í dag.
Sýna þau hvort öðru blíðuhót
og svífa‘ inn í kvöldsólarlag.
Ég hef alltaf verið
veik fyrir svona strák
sem geysist um á mótorfák
og hræðist ekki neitt.
[m.a. á plötunni HLH-flokkurinn – Í góðu lagi]














































