Róa (Eurovision – Ísland 2025)
(Lag og texti: Hálfdán Helgi Matthíasson, Ingi Bauer og Matthías Davíð Matthíasson)
Róandi hér, róandi þar.
Róa í gegnum öldurnar.
Það getur ekkert stoppað mig af.
Róandi hér, róandi þar.
Róa í gegnum öldurnar.
Það getur ekkert stoppað mig af.
Ég set spýtu ofan á spýtu og kalla það bát.
Ef ég sekk í dag er það ekkert mál.
Með árar úr stáli sem duga í ár.
Stefni á Færeyjar – já ég er klár.
Ég er með vesti fyrir belti
og vatnshelda skó
því að veðrið það er erfitt,
ég er kominn með nóg.
Er sjórinn opnast koma öldurnar,
ég er einn á bát að leita að betri stað.
Ég er ekki ennþá búinn að missa allt
en við setjum seglin upp og höldum aftur af stað.
Róandi hér, róandi þar.
Róa í gegnum öldurnar.
Það getur ekkert stoppað mig af.
Róandi hér, róandi þar.
Róa í gegnum öldurnar.
Það getur ekkert stoppað mig af.
Ég er ennþá á bát, sjáðu þetta vá.
Stoppa í Grænlandi?
Já ég er down.
Stýri á sjó, ég er kafteinn.
Kallaðu mig Gísli Marteinn.
Margir mánuðir síðan ég sá síðast sól.
Vil eyða restinni af lífinu hér út á sjó.
Er sjórinn opnast koma öldurnar,
ég er enn á bát að leita að betri stað.
Ég er ekki ennþá búinn að missa allt
en við setjum seglin upp og höldum aftur af stað.
Róandi hér, róandi þar.
Róa í gegnum öldurnar.
Það getur ekkert stoppað mig af.
Róandi hér, róandi þar.
Róa í gegnum öldurnar.
Það getur ekkert stoppað mig af.
Hey hey hey hey hey hey!
Róandi hér, róandi þar.
Róa í gegnum öldurnar.
Það getur ekkert stoppað mig af.
Róandi hér, róandi þar.
Róoa í gegnum öldurnar.
Það getur ekkert stoppað mig af.
Það getur ekkert stoppað mig af.
Það getur ekkert stoppað mig af.
[af smáskífunni Væb – Róa [ep]]














































