Samband í Berlín
(Lag / texti: Mike Pollock / Bubbi Morthens)
Nú þyrla vindar haustsins hinstu blöðum,
borgin gerist þung og sljó.
Skakkur hangi ég á hinum og þessum stöðum,
bráðum kemur slydda og snjór.
Myrkrið hug minn umlykur,
að blekkja sjálfan mig, það er mín fró.
Horfa á vini sína bryðja sýrur eins og sykur,
spá í augu þeirra, sem eru eins og kulnuð eldstó.
Í frosti, í rauðri lakkkápu með bláa fætur.
Klúryrðum hvíslar að þér, hún lyktar af ódýrum bjór.
Kynfærin þurr eins og hákarlaskrápur.
Verndarinn var ómenni og eftir því stór.
Nú hylur snjórinn haustsins hinstu blöð,
borgin gerist þung og sljó.
Með bakpokann arka ég streit niður á stöð,
því af Berlín eða Hamborg hefi ég fengið nóg.
[af plötunni Utangarðsmenn – Geislavirkir]














































