Segðu það bara

Segðu það bara
(Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir)
 
Of langt síðan síðast!
Þetta þarf að laga.
– Æj sá þetta núna.
Fæ ég eftir fjóra daga.

Margt í gangi.
Skólinn má ekki bíða.
Ég væri til í eitthvað…
en bara aðeins síðar.

En hvað með núna?
Er minna að gera?
– æj, er svo þreyttur,
svoldið mikið um að vera.

Æj, verð bara heima (mhm),
æj, kominn í taxa (aha),
heyrumst kannski seinna (einmitt).

Vil ekki taka hinti, þar er ég treg.
Þyki samt annars klár og skemmtileg.

En er í alvöru svona erfitt að svara?
Ef þú vilt ekki neitt segðu það bara.

Blessuð hvernig ertu?
Voða sæt með hárið stutt.
Hvernig er Köben?
Sérðu eftir því að hafa flutt?

– Hæ gaman að heyra,
sé ekki eftir því!
Flyt samt heim þegar
sumarið er fyrir bí.

Nú er ég heima ef þú myndir kannski vilja kíkja í kaffi?
– Það hljómar vel en núna er ég í koffínstraffi.

En að kíkja í bjór þá? (edrú)
En að kíkja í sund þá? (slappur)
En að leyfa sér vatnsglas? (haha)

Ég ætla ekki’ í Frúna í Hamborg við þig,
já eða nei – viltu hitta mig?

En er í alvöru svona erfitt að svara?
(það tekur 10 sek)
Ef þú vilt ekki neitt segðu það bara.

Hey takk fyrir síðast!
Gleymdi ég kannski armbandi?
Er leið að sækja það?
Ég er stundum akandi.

Hæhæ aftur,
sástu þetta armband?

[af smáskífunni Flott – Segðu það bara [ep]