Skál fyrir þér
(Lag og texti: Friðrik Dór Jónsson)
Ég og þú,
við erum besta saga sem að hefur verið sögð.
Það ert þú
sem ég vil hafa þegar veröldin er hörð.
Ég veit það nú,
það er bara þú, já bara þú.
Svo skál fyrir þér, fyrir þér.
Skál fyrir þér, fyrir þér.
Í fyrstu var ég feiminn
og faldi mig á bakvið hurðar.
Mér fannst þú ung
en samt svo mikið yfirburðar
svo ég gleymdi því skjótt,
saman við dag og nótt,
hlutir gerðust svo fljótt.
Stundir í B8 og B5,
sérhver mínúta þéttsetin
gat samt étið okkur letin.
Teppi og spóla
í Radiola,
allt sem ég hafði að bjóða,
fjórtán tommur, allir sáttir,
opnar allar lífsins gáttir
fyrir þér.
Fyrir þér,
skál fyrir þér, fyrir þér.
Skál fyrir þér, fyrir þér.
Skál fyrir þér, fyrir þér.
Lægðin yfir landinu
hún virtist fylgja haustinu.
Tók bita af sambandinu
og sjálftraustinu.
Við tókum okkur tíma,
við tókum okkar tíð
og síðan heygðum annað stríð.
Á G24 ég beið eftir fréttum
stórum skjálfandi á báðum fótum.
Þú komst grátandi út,
maginn allur í hnút,
eftir 8 stutta mánuði þá yrðum við þrjú.
Ég og þú, við erum besta saga sem að hefur verið sögð.
Það ert þú sem ég vil hafa þegar veröldin er hörð.
Ég veit það nú, það er bara þú, já bara þú.
Svo skál fyrir þér, fyrir þér!
Svo skál fyrir þér, fyrir þér!
Svo skál fyrir þér, fyrir þér!
Svo skál fyrir þér, fyrir þér!
[m.a. á plötunni Friðrik Dór – Segir ekki neitt]














































