Skuld

Skuld
(Lag / texti: Skálmöld / Snæbjörn Ragnarsson)

Gleymdu því sem gamalt er
og gleymdu því sem fram hjá fer.
Gleymdu því sem gerðist þá
og gleymdu því sem færist frá.

Skuld.

Geymdu það sem gagnast vel
og geymdu það sem hrekur Hel.
Geymdu það sem gleður þig
og geymdu það sem sannar sig.

Dreymdu allt sem deyfir kvöl
og dreymdu allt sem bætir böl.
Dreymdu allt sem dugar best
og dreymdu allt sem metur mest.

Skuld.

Framtíða ráðum, ekki er
yfir nokkur vafi.
Samtíð spáðum, þagnar þver,
þráin okkar hafi.

Gleymdu.
Geymdu.
Dreymdu.

Hvorki guð né menn
vita líf sitt enn.
Hvorki guð né menn.

Sestu niður við Urðarbrunninn.

[af plötunni Skálmöld – Ýdalur]