Sönn íslensk sakamál

Sönn íslensk sakamál
(Lag / texti: XXX Rottweiler hundar / Ágúst Bent Sigbertsson, Lúðvík Páll Lúðvíksson og Erpur Þórólfur Eyvindsson)

XXX Rottweiler hundar
telja fjölda á bilinu sex uppí nokkra tugi,
ólíkir innbyrðis en mynda eina sterka heild.
Þeir hafa allir komið fólki eðlilega fyrir sjónir
sem synir, feður, frændur, nemar, dagskrárgerðarmenn og tónlistarmenn.
Þeir göbbuðu ótrúlegasta fólk
en eru í raun alþjóðleg glæpasamtök með pólítísku ívafi.
Þeir hafa fjármagnað starfsemi sína með vafasömum hætti
svo sem með sölu á dvergaklámi.
BlazRoca, einnig þekktur sem Ali Höler er pólítískur öfgamaður
sem hefur víðtæk tengsl við ógæfu- og óreglumenn.
Mikil metinn meðal vestfirsku mafíunnar
og hefur einnig með grunsamleg tengsl við hætttulega hópa erlendis.
200 ríkustu mönnum Íslands stafar sérstaklega mikil hætta af honum.
Að ég sé hóra, hah, það er ekkert nýtt, hva
heldurðu að mamma þín fái að ríða frítt?
Ég er maðurinn sem brenndi inn Bjarna Benn,
á svörtum lista yfir pólitíska öfgamenn.
Þegar kemur að mér ríður jafnvel Barbie framhjá Ken.
En enginn er eyland svo mitt band eru tíu þúsund manns.
Köstum bensínsprengju á stað sem kennir línudans,
óskabörn þessa lands.
Rottweiler langar þig að hanga með þeim? ekki séns
nema í skóreim, sláum hart eins og kúbein.
Ekkert lyf dugar gegn okkur eins og krabbamein,
„rappa á ensku fyrir heiminn“ hvað er það?
Hahaha tíu eintök seld undir borðið.
Mín orð eru morð, svo forðið ykkur,
tittlingurinn minn er alltof fokkin þykkur.
Að ég sé gay?
No way.
Ég er enginn hommi,
ég verð bara fucked up af rommi.
Ég ætlaði að ríða mömmu þinni
en hún var ekki inni
svo ég reið pabba þínum.
Ég á meira af línum
en Franklin Steiner
og þær rista dýpra en typpið á mér.
Byrjaðu í dag að elska þetta hljóð hér: „pló pló, pááá“.
Ég á íslenskt rapp, og þú vilt battle-a?
Eins og að eiga í GAP og fokka í Atla
XXX
Aðeins þeir bestu.
Afgreiðum ykkur hvenær sem er
eins og BSÍ svo rassemi drepstu.

Ágúst Bent gengur yfirleitt undir síðari nafninu – Bent,
undirheimahundur í harðri neyslu
sem beitir jafnt verkfærum sem eldhúsáhöldum
gegn þeim sem standa í vegi fyrir honum.
Ég representa ekki Árbæ,
representa Rauðhólana.
Ég representa ekki rappara,
representa fyrir morðingja, nauðgara og bófana.
Ég þarf ekki að skrifa svarrímu,
ég skrifa samúðarskeyti
því ég er Bent a.k.a. Gummi feiti.
Er ástæðan fyrir því að fólk læsir hurðum og fer með bænir.
Ég, Vatnsberinn, BlazRoca og Franklin Steiner.
RLR gerir það svo að þú hlýtur að þekkja stílinn minn.
Með hamar í annarri og kókaín í hinni í Öskjuhlíðinni
og ég slepp út af ríkisstofnunum,
fer með þig upp í Rauðhóla og hendi í þig skóflu.
Píningaraðferðir beint af toppnum.
Jafnvel Gotti telur mig ógnun.
Maðurinn sem handrukkar fyrir Kio Briggs.
Stórfelldar dýrafórnir í kjallaranum sem ég heiti DMX,
sting besefa í merina, sker hana á kverkana
og blóðinu er makað á.
Satt íslenskt sakamál.
Ég er sá sem aðrir glæpamenn óttast jafnt sem virða,
það er röddin mín sem þú heyrir í hausnum á þér segjandi þér að myrða.
Ef sódóma væri Reykjavík væri ég bæði Aggi pó og Moli
og ég er soddan glæpahundur að jafnvel þessi lína er stolin.
Ef en að þú heldur að þú getur fokkað í Bent og Blaz,
þá bomba ég þig svo í rass að ég breyti Reykjavík í Belfast.
Ég er helsti valdur morðtilræða, neyslu og sorg.
Eins og Bubbi sagði „Reykjavík er ekki lengur lítil saklaus borg.“

Baddi – hefur oft verið nefndur atvinnu-case á skilorði,
ósköp venjulegur fjölskyldufaðir
í venjulegu starfi sem drepur alltaf þegar hann reiðist.
Búinn að eiga sex fjölskyldur sem allar hafa horfið á óskiljanlegan hátt.
Eins og Bubbi Morthens hættir aldrei að rokka,
ef ég væri kona væri ég rauðsokka
því ég mundi aldrei nenna að plokka píkuhár.
Ég er stórskáld
eins og Einar Már og Einar Kárason.
Gætir ekki unnið mig
þótt þú værir Krs-One.
Capo di tutti Capi.
Kallaðu mig Don
meðan þú „keep it real“ eins og, Sílikon?
Ég og Non Phixion
við skutum Reagan.
Mín orð eru morð a la Rote Armé Fraktion.
Þetta action er gegn þér
Davíð Oddsson.
Eins og þú Babýlon muntu falla
gætir alveg eins hent þér fram af svölum í Engihjalla
Þú munt falla.
Verðbréf, kókaín og tjokkóföt úr GK?
Er nauðsynlegt að skjóta þá?

Pló pló, pááá.

Eiki – betur þekktur sem Gummó
hóf ferilinn sem plötusnúður á Ibiza
og stóð í smygli á ólöglegum kóngahálsplötum
Hann er þekktur sem umsvifamesti aðilinn í stóra munntóbaksmálinu.
Lúlli hefur mikið vægi innan vestfirsku mafíunnar
en eyðir mest af sínum tíma á Yrkinu, fullur.
Tók á sig sökina fyrir félaga sinn Gummó
og sat saklaus inni í 20 ár fyrir aðild af stóra munntóbaksmálinu.
Hefur ítrekað verið handtekinn síðan fyrir að ræna pítsusendla.
Nú ert þú orðinn fínt útflúraður og átt bara eftir að fá það á trýnið.

[af plötunni XXX Rottweiler hundar – XXX Rottweiler hundar]