Stimpilklukkupabbar

Stimpilklukkupabbar
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Dagar víns og rósa og rómantískra nátta
reyndust skammlífari en þau vildu bæði.
Nú rignir tárum og tryggðin er dimmur skógur
og ástin er hjá öðru fólki í fæði.

Dagar Kulda og gremju ganga hér um húsið.
Gaddavírinn kaupa, víglínan er dregin.
Að morgni þau mætast og sáttmálinn er rofinn.
Mæla ekki orð og ganga út á veginn.

Húsdýragarðinn pabbarnir ganga
fleiri en einn, laugardaga langa.
Einmana hjörtu og hópurinn labbar.
Stórir og litlir stimpilklukkupabbar.

Það er barist um börnin og orðin ekki spöruð.
Fráskyldum feðrum smalað er í réttir.
Hún fékk allt og þeir þora ekki að kvarta
nema á börunum blóðugar segja fréttir.

Upp á náð og miskunn þeir mega hitt börnin
og mæna á húsið sem þeir byggðu forðum
á McDonalds fara með börnin sín að borða
með brotið sjálfstraust og höfuðfylli af orðum.

Dagar víns og rósa og rómantískra nátta
reyndust skammlífari en þau vildu bæði.
Í skotlínunni börnin lenda saklaus.
Hjörtun verða vígvallarsvæði.

[af plötunni Bubbi Morthens – Arfur]