Þegar óttinn deyr

Þegar óttinn deyr
(Lag og texti: Elín Hall)

Ó þú ert farinn í hausnum.
Vil ég vita hvar þú heldur þig?
Nóg fannstu af skammtímalausnum,
en í botni glassins finnurðu ekki mig.
Borgarmyrkrið glitrar
í botnlausum augum,
á þjótandi bílum.

Helltu úr þér lítið meir.
Helltu í mig lítið meir.
Haltu þegar nóttin deyr.
Haltu í mig lítið meir.
Haltu þegar óttinn deyr,
þegar ég get ekki meir.

Fuck, ég sé þig tala við barinn
af ástríðu sem áður fór í mig.
Ó getur hann gefið þér svörin
sem holdið mitt og blóð átti ekki til?
Götuljósin titra.
Þú bítur í tómið
og spýtir því á mig.

Helltu úr þér lítið meir.
Helltu í mig lítið meir.
Haltu þegar nóttin deyr.
Haltu í mig lítið meir.
Haltu þegar óttinn deyr,
þegar ég get ekki meir.

[af plötunni Elín Hall – Heyrist í mér?]