Þeir fengu fiskinn í arf
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Við lygnan fjörð á fögrum degi
fæddist átján marka peyi.
Faðir hans á árum áður
eignaðist bát og varð fjáður.
Flutti drengi sínum sögu
og söng fyrir hann þessa bögu:
Að örlögin hefður orpið
öllum kvóta og þorpi
handa karli, föður hans.
Og núna er hann orðinn stór
og hefur allt sem þarf.
Við eigum miðin
en hann fékk fiskinn í arf.
Já, núna er hann orðinn sá.
Á allt plássið og togara þrjá.
Vinalegir eru vinir hans
viljugir þjónar sægreifans.
Félögum sínum sagði sögu,
sagði frá pabba og hans bögu.
Að örlögin hefðu orpið
öllum kvóta og þorpi
handa honum, syni hans.
Í kvótaklúbb eru strákarnir
kóngar hafsins, greifarnir.
Þingmenn sína þekkja
sem þjóðina aldrei blekkja
sem lögin setja lagavissir
og lofa: Enginn þeirra missir
það sem örlögin hefðu orpið,
allan kvótann og þorpið,
í hendur erfingjans.
[af plötunni Bubbi Morthens – Arfur]