Þér er ekki boðið

Þér er ekki boðið
(Lag og texti: XXX Rottweiler hundar)

RLR, vottar Jehóva, Árni Johnsen, ungir sjálfstæðismenn, allir að austan, Gummi Gonzales, Höttur á Grenivík, Faculty, Steingrímur Njálsson, Kio Briggs, Fjölnir Þorgeirsson, Íslensk erfðagreining, Hrafn Gunnlaugsson, [?], [?], Halim Al, Félag íslenskra þjóðernissinna, mamma þín, Begga dauða, Krossinn, Skímó, HNN, Laddi, Land & synir, [?] deildin, Bónusfeðgar, pabbi þinn og Jesús – þér er ekki boðið!

Partíið mitt er doggý eins og dalmatíuhundur
en ég slít hann í sundur,
ég er rottweilerhundur.
Það þýðir vesen eins og rifinn smokkur og brundur,
það er partí í Kópavogi.
Og það stoppar aldrei
ef það er partý, er það þar.
Sýp Silver dry, fer mömmu þinni í bað,
enginn stoppar það
þegar SL og mixer er kominn af stað
og þú veist það vel,
allar sætar stelpur eru hér.
Engar verðbréfakókbeyglur sem lykta af kæstum sel.
Ertu búinn að reykja frá þér allt minni?
Drekkurðu vodka eins og Finni?
Mér er skítsama svo lengi sem þú ferð úr skónum og reykir ekki inni.
Trommur og bassi,
reggae og hipphopp blandað með djassi,
jóna með hassi.
Vaselín, handjárn og typpi í rassi.
Þinn eini inngöngupassi er Blazzi!
Og ef þú veist ekki hver það er
þá er þér ekki boðið,
þér er ekki boðið!

Rapp! Ég hætti að hlusta á þessa músík í 8. bekk!
Þér er ekki boðið!

Ég átbattla þig svo, að jafnvel mamma þín segir „vesalings vanskaplingurinn“,
þú sökkar svo mikið að ég verð að spyrja „hvernig bragðast tippalingurinn?“
Hik er sama og tap svo það gengur ekkert hangs.
Stíllinn þinn þarf róttækari breytingar en þær hjá Önnu Kristjáns.
Eins og ég sagði þá er búið að loka Keisaranum svo þig hlýtur að vanta húsnæði.
Ég rústa þér þó ég kæmi af hausnum eins og hár á fólki með hvítblæði.
Sama hvað þú ert grófur þá verð ég alltaf skæðari,
í hipphopp fokka ég í bæði konum og körlum alveg eins og ég væri blæjari.
Og ef að þau dissa mig skyldu
þá myndi ég eins og Woody Allen fokkast í minni eigin fjölskyldu.
Sama hver er andstæðingurinn er minn textalega mátt kála honum.
Rímurnar mínar eru svo grófar, þær eru bannaðar í Genfarsáttmálanum

Löggunni er aldrei boðið en hún kemur alltaf samt
en ég á fólk þar eins og út um allt.
Fyrir utan það að krú mitt drekkur mest bara malt
en ef mörgæsin er komin til að ríða, stingum typpi í hana kalt
og margfalt
því mitt krú er með,
þeir stinga tippi í hvað sem er
þótt það sé með alskegg og reð
og meira að segja Davíð Oddsson má koma með
ef þú ábyrgist mér að hann sjúgi typpið vel.

Ókei – þú vilt stjörnumáltíð,  Mc – ís, hvað?

Þegar ég stíg inn taka menn upp vopn og kúbein
og kvenmenn taka um píkunar sínar svo það leki ekki úr þeim.
Mig langar helst heim en ég fer í partíið þó.
Kærastar fúlir því gellurnar þeirra ruglast á mér og Leonardo DiCaprio.
Staðurinn þar sem ég er með hljóðnemann er endirinn.
Ég er með fleira fólk sem hlustar á vitleysuna í mér heldur en Benny Hinn.
Eftir að þú verður stór bíður þú og vonar,
aðdáendahópurinn þinn er fámennari en stuðingsmannaflokkurinn Ástþórs Magnússonar.
Nú öfundar þú mig útaf, og bölvar yfir því
að nafn mitt var fljótt að stækka eins og brjóstin á Britney Spears.
Ég er hipphopp í gegn svo ekki syngja þinn söng við mig.
Fötin mín eru víðari en mannsrassgöt í gaypride göngunni.
Að battla þig ég gæti rústað þér með annarri,
með rímur ljótari en klippingar á Adda Fannari.
Dissa mig ég rústa þér með móðgunum í runum
og læt feril þinn vera dauðari en núverandi ferillinn hjá Rokklingunum.
Það hefur oft verið sannað að ég sé ógeð.
Battla mig ertu að fokkast upp á eitthvað feitara og þrengra en maðurinn sem afmeyjaði Roseanne.
Fólk spyr mig af hverju ég er með svona mikið af myndlíkingum
því ég skít meira af þeim en karlmenn á Spotlight skíta kleinuhringjum.

Ég á 90% hlut í Íslenskri erfðagreiningu – Þér er ekki boðið!
Ég var starfsmaður mánaðarins tólf mánuði í röð – Þér er ekki boðið!
Ek á blæjubíl og blasta Europopp – Þér er ekki boðið!
Hey ég vinn hjá Magnum, veistu hvað ég tek mikið í bekk? – Þér er ekki boðið!
[…]
Já en ég er Jesús, kom alla leið frá Nasareth labbandi á tánum– Þér er ekki boðið!

[af plötunni XXX Rottweiler hundar – XXX Rottweiler hundar]