Þorskacharleston

Þorskacharleston
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Frystihúsið eins og gapandi tóft
blasir við mér allan daginn.
Í vélarsalnum vofur ganga um gólf
tínandi upp hræin.

Klukkan tólf að kveldi leggst ég til svefns,
dreymi um að komast í bæinn.
Þeir koma og ræsa mig klukkan sjö,
stimpilklukkan býður góðan daginn.

Inni‘ í tækjasal bólugrafnir unglingar
skipa út þúsund af kössum
meðan verkstjórinn gengur um gólf
líkt og könguló með flugur í pössun.

Inni‘ í sal tugir jómfrúa með hvítar svuntur
mala gull fyrir herrann og hans lið
en úti í horni í glerkassa undirtyllan situr,
horfir yfir salinn með guðdómlegum svip.

Niðri´ í móttöku öldungurinn stígur
sinn feigðarvals með þorskinn við hönd,
kreppt lúkan um stinginn blífur,
kastar fisknum uppá færibönd.

Karfi, ufsi, þorskur, ýsa
kanna nú ókunnug lönd
á matarborði í Flórída,
gælir við þá demantskreytt hönd.
 
[af plötunni Bubbi Morthens – Ísbjarnarblús]