Þú veist það núna (Englar alheimsins)
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Þú veist það núna þínir dagar og draumar
duttu ekki af himnum ofan.
Nei ekki heldur dularfullir dópaðir straumar
sem drógu þig aftur heim í kofann.
Hvar fiskar synda sólarmegin í skugganum
með sólgleraugu og Panamahatt.
Það varst þú sjálfur sofandi í svalanum
sökkvandi í tómið ekki satt.
Núna ertu kominn heim, hingað fóru þeir með þig.
Þú vissir að veruleikinn var tapaður leikur.
Þú veist það núna þessir námumenn heilans
nota lyfin í staðinn fyrir orð,
síðan skríða þeir inn í innstu afkima hjartans
og hrópa maður fyrir borð.
Þannig takirðu ekki sundtökin sjálfur,
þá sekkurðu í djúpið eins og steinn.
Og læknirinn muldrar þessi maður er aðeins hálfur.
Síðan ertu skilinn eftir einn.
Þú veist það núna héðan mun enginn snúa aftur.
Allir dagar eru dagurinn í gær.
Með talfærin lömuð og í limum enginn kraftur.
Lyfin færðu þig stöðugt fjær.
Þeir sögðu við fundum hann fyrir stuttu síðan
fullan af sól en ískaldan.
Og ég vissi að þannig vildirðu losna við kvíðann.
Varlega eitt skref síðan tók þig aldan.
Núna ertu kominn heim, hingað fóru þeir með þig.
Þú vissir að veruleikinn var tapaður leikur.
[af plötunni Bubbi Morthens – Arfur]














































