Upp að mér

Upp að mér
(Lag og texti: Elín Hall)

Hverju ertu að reyna að starta núna?
Pínu tipsy en færir þig nær og
segir ég hugsi of mikið.

Svo ég býð þér uppá drykk,
fyrst í nótt gildir ekkert oh…
Ég reyni að hugsa ekki of mikið.

Fast upp að mér.
Ég hef beðið og þú veist það.
Svo haltu hendinni á mjöðminni á mér.
Ég veit að ég ræð ekkert við þig.

Ég finn sjálfa mig stara,
um hvað vorum við að tala?
Mig langar bara að hringja á leigubíl
en núna herbergið byrjar að snúast.
það eina sem kemst fyrir núna
er bara við bara við oh

Fast upp að mér…

Baby baby tíminn stendur kjur,
segðu mér að þú sért ánægður,
við þurfum ekkert að fara.
Baby baby, tíminn stendur kjur,
sýndu mér að þú sért ánægður
án þess að tala.
úú…

Fast upp að mér…

[af plötunni Elín Hall – Með öðrum orðum]