Vertu hjá mér

Vertu hjá mér
(Lag og texti: Elín Hall)

Blær blíður í björtum loga.
Vær sígur í hjörtum togar.
Enginn hingað sér.

Ung, fríð í fögrum lundi.
Þung hríð í öðru sundi.
Heyrir ekkert hér.

Vertu hjá mér
og ekki fara frá mér
því ég vil vera hjá þér,
mun aldrei fara frá þér.

Brædd í bruna andartaka.
Hrædd við hrun elskendanna.
Heldur henni fast.

Vertu hjá mér
og ekki fara frá mér
því ég vil vera hjá þér,
mun aldrei fara frá þér.

Ég mun ekki bregðast.
Ég mun ekki bregðast þér núna
þó að himnar niður féllu
haltu ennþá fast í trúna.
Ég mun ekki bregðast.
Ég mun ekki bregðast þér núna…

[af plötunni Elín Hall – Með öðrum orðum]