Við sundin
(Lag / texti: Svavar Benediktsson / Kristján frá Djúpalæk)
Hvort manstu vinur öll vorin okkar forðum,
hjá vík og sundum margt kvöld í draumi leið.
Við gengum þögul og heyrðum sæinn syngja
við sandinn kvæðið um það, sem okkar beið.
Og vafin töfrum í vitund okkar beggja
sú veröld sýndist, en yfir skugga bar.
Því leiðir skildust og bernskan er að baki,
en bylgjan kveður þó enn um það, sem var.
Því skulum við ganga saman út að sænum,
er sólin logar við hafsins ystu rönd.
Og sólin logar við hafsins ystu rönd.
Og hlusta á ölduna kátt við sandinn kliða.
Í kvöld sem forðum, við leiðumst hönd í hönd.
Í ungum brjóstum við ólum fagrar vonir,
sem eigi rættust en söm er okkar þrá,
að njóta æskunnar unaðssælu stunda
í ást og friði við sundin draumablá.
[m.a. á plötunni Vilhjálmur Vilhjálmsson – Dans gleðinnar]














































