Vill hún Jón

Vill hún Jón
(Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson)

Mig vantar fé og víst er ég í vandræðum,
staurblankur, að standa í svona stórræðum.
Heitt ég elska hýra mey
en hún er soddan flón.
Ef virðist vera á mér hik
vill hún Jón.

Bara ég gæti boðið henni á ballið næst,
ég get það ekki, ef enginn aurinn fæst.
Nonni býður betur,
en hún Beta er soddan flón.
Ef virðist vera á mér hik
vill hún Jón.

Fálkinn Nonni, fíflið Nonni,
sendir henni brjóstsykur og blóm.
Sendir kandís, sendir lakkrís.
Ég fer marga fýluferð,
því faðir hans á lakkrísgerð.

Ég pípa á þennan peyja, þó pabbi hans sé
margfaldur milli og moki í hann fé.
Ég vona bara hún vilji mig
og verði með mér hjón.
En vilji hún ekki vitkast neitt
vill hún Jón.

[af plötunni Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar – Grásleppu Gvendur]