
Haukur Nikulásson
Haukur Nikulásson er ekki með þekktustu tónlistarmönnum landsins en hann kom þó að íslenskri tónlist með ýmsum og ólíkum hætti.
Haukur var fæddur haustið 1955 á Suðurnesjunum en flutti ungur til höfuðborgarsvæðisins og bjó þar alla ævi eftir það, hann vann ýmis störf en lengst var hann með eigin verslunarrekstur í tölvugeiranum. Haukur var jafnframt þekktur bloggari.
Ekki liggur neitt fyrir um tónlistarferil Hauks frá yngri árum en hann mun þó hafa starfað í hljómsveit, einni eða fleiri. Það var svo á tíunda áratugnum sem hann hóf að koma fram sem trúbador, líklega bæði einn með gítar en líka með hljómborðsskemmtara og gítar á stöðum eins og Kaffi Reykjavík – þá var hann iðulega einnig með karaokebúnað í för. Um það leyti (1994) gaf fyrirtæki hans út geisladisk sem hafði að geyma karaoke-útgáfur af nokkrum íslenskum lögum en Haukur hafði sjálfur unnið tónlistina með aðstoð tónlistarforrita.
Haukur stofnaði einnig og starfrækti dúettinn Hættir ásamt Gunnari Antonssyni eftir aldamótin 2000 en sú sveit lék víða á smærri samkomum s.s. árshátíðum og dansleikjum ýmissa félagssamtaka auk einkasamkvæma. Haukur hafði einmitt einnig aðstoðað Gunnar við upptökur og útgáfu á plötunni Ferðalög, sem Gunnar gaf út 2001.
Haukur lést vorið 2011 eftir skamma sjúkdómslegu en hann var þá aðeins fimmtíu og fimm ára gamall.














































