Hermann Fannar Valgarðsson (1980-2011)

Hermann Fannar Valgarðsson

Hermann Fannar Valgarðsson starfaði aldrei sem atvinnutónlistarmaður en hann kom að tónlist frá ýmsum hliðum um ævina.

Hermann Fannar fæddist í Reykjavík snemma árs 1980 en var Hafnfirðingur í húð og hár og þekktur stuðningsmaður FH-inga, hann var hljómborðsleikari og tölvumaður í nokkrum hljómsveitum á unglingsárum sínum og þeirra á meðal voru Útópía, Nuance og Svarta síða skeggið en hann mun einnig hafa komið við sögu hljómsveitarinnar Súrefni. Hann mun jafnframt hafa verið rótari fyrir einhverjar hljómsveitir, að minnsta kosti fyrir Maus.

Hermann Fannar eða Hemmi feiti eins og hann var gjarnan kallaður (þrátt fyrir að vera fjarri því í yfirvigt) vann um tíma í félagsmiðstöðvum Hafnarfjarðar á unglingsárum sínum og mun hafa verið einn þeirra sem kom Höfrungnum – hæfileikakeppni félagsmiðstöðva í Hafnarfirði í kring en þar kom fjöldinn allur af tónlistarfólki fram og steig sín fyrstu skref, þeirra á meðal má nefna Jón Ragnar Jónsson. Starfsvettvangur hans varð áfram tengdur tónlist því hann hóf að starfa við dagskrárgerð á útvarpsstöðinni X-inu, Radio X og Radio Reykjavík en hann var tengdur þeim vettvangi með hléum alla ævi, þá var hann einnig um tíma með þátt í félagi við Jón Mýrdal á sjónvarpsstöðinni Popp Tíví sem bar nafnið Spritz. Fyrirtækjarekstur átti svo einnig eftir að koma inn í líf Hermanns, tölvuhugbúnaður, vefhönnun, verslun með barnafatnað, kaffihús og ferðaþjónusta voru meðal þeirra og var hann því alla tíð með marga bolta á lofti.

Hermann varð ekki langlífur, hann varð bráðkvaddur haustið 2011 á þrítugasta og öðru aldursári sínu. Minningu hans hefur verið haldið á lofti síðan því fjölmargir vina hans hafa t.a.m. haldið tónleika til minningar um hann og hefur ágóði þeirra samkoma iðulega runnið í minningarsjóð um hann, til styrktar góðu málefni. Þannig voru t.d. haldnir minningartónleikar um Hemma í desember 2011 þar sem margar af þekktustu hljómsveitum landsins komu fram í Kaplakrika í Hafnafirði.