Hljómsveitin Hvað sem er lék í nokkra mánuði í Duus húsi í Fishersundi sumarið 1986 og var þá skipuð þeim Rafni Sigurbjörnssyni, Pálma J. Sigurhjartarsyni og Ágústi Ragnarssyni, Pálmi hefur væntanlega leikið á hljómborð en hér er giskað á að Rafn hafi verið trommuleikari og Ágúst bassaleikari.
Í umfjöllun um Hvað sem er á sínum tíma var sveitin sögð hafa verið stofnuð fjórum árum fyrr og leikið þá á pöbb í Hafnarfirði, annað liggur ekki fyrir um þessa sveit og er óskað eftir frekari upplýsingum um hana.














































