
Monika Abendroth
Sjö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:
Steinunn Harðardóttir er fyrsta afmælisbarnið á listanum en hún er þrjátíu og átta ára gömul í dag. Steinunn hefur verið í hljómsveitum og verkefnum eins og Sparkle poison, Fushigi four og Skelki í bringu en er að sjálfsögðu þekktust sem Dj flugvél og geimskip og hefur gefið út nokkrar plötur undir því aukasjálfi.
Hin þýska Monika Abendroth hörpuleikari fagnar áttatíu og eins árs afmæli í dag. Hún hefur búið hér á landi síðan um miðjan áttunda áratug síðustu aldar og leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að leika á mörgum tugum hljómplatna hérlendis. Monika er einna kunnust fyrir samstarf sitt við Pál Óskar Hjálmtýsson en þau hafa gefið út tvær plötur saman.
Albert Elías Arason bassaleikari hljómsveitarinnar Meistara dauðans á einnig afmæli en hann er tuttugu og fimm ára gamall á þessum degi. Meistarar dauðans sem vöktu töluverða athygli fyrir nokkrum árum sendu frá sér tvær breiðskífur.
Þá á myndlistarkonan og rapparinn Countess Malaise eða öllu heldur Dýrfinna Benita Basalan afmæli en hún er þrjátíu og þriggja ára gömul á þessum degi. Dýrfinna Benita nam í Hollandi og hóf að vinna tónlist þar en hefur síðan unnið m.a. með sveitum og tónlistarfólki eins og Lord Pusswhip og Cyber auk þess að starfa í eigin nafni, þá hefur hún sent frá sér plöturnar Hystería og Matilda.
Brynhildur Karlsdóttir sviðslistakona, skáld, danshöfundur og tónlistarkona heldur á þessum degi upp á þrjátíu og eins árs afmæli sitt. Í tónlistinni hefur Brynhildur meðal annars verið söngkona og textahöfundur í hljómsveitunum Hórmónum og Kvikindi, og var kjörin besti söngvari Músíktilrauna þegar fyrrnefnda sveitin sigraði þá keppni árið 2016.
Jóhann (Ásberg) Gestsson söngvari hefði ennfremur átt afmæli á þessum degi en hann lést árið 1998. Jóhann, sem fæddist 1934, söng með fjölmörgum hljómsveitum hér heima s.s. Hljómsveit Svavars Gests, Hljómsveit Gunnars Ormslev og Stratos kvartettnum en hann bjó lengstum erlendis og því varð söngferill hans ekki sá sem hann hefði getað orðið hér á landi.
Og síðastur af afmælisbörnum dagsins er hér nefndur Vignir Ólafsson úr Vestmannaeyjum sem líklega er þekktastur sem einn af Pöpunum en þar hefur hann leikið á bassa. Vignir hefur jafnframt starfað með fjöldanum öllum af öðrum hljómsveitum og hér má nefna sveitir eins og Qmen, Kelta, Hrafna, Kíví, Lífsmark, Sótarann og Tilfinningu svo nokkrar séu nefndar.
Vissir þú að Rúnar Júlíusson kom til greina sem gítarleikari í Brimkló haustið 1975?














































