Hvert þó í veinandi (1949)

Vorið 1949 var settur saman kvintett sem kom fram á árshátíð Félags íslenzkra hljóðfæraleikara (FÍH) á Hótel Borg og lék þar fyrir gesti sem skemmtiatriði undir nafninu Hvert þó í veinandi, þeir félagar voru þar í dulargervum svo erfitt var að henda reiður á hverjir væru þar á ferð.

Þetta voru þeir Björn R. Einarsson básúnuleikari, Jónas Dagbjartsson trompetleikari, Poul Bernburg (yngri) trommuleikari, Þorvaldur Steingrímsson alto saxófónleikari og Skafti Sigþórsson tenór saxófónleikari en þetta mun hafa verið í eina skipti sem kvintettinn kom fram.