Hví-bandið (einnig kallað Hvítabandið í heimild) starfaði veturinn 1985 til 86 og kom þá fram á samkomum Vísnavina á Hótel Borg.
Hví-bandið mun hafa verið tríó skipað þremur gítarleikurum sem léku (og sungu?) frumsamið efni í bland við lög við ljóð þekktra skálda, en engar frekari upplýsingar er að finna um sveitina og er því hér með óskað eftir þeim – s.s. um nöfn meðlima hennar.














































