Bleikja
(Lag og texti: Fannar Ingi Friðþjófsson)
Líðan rokkar
upp og niður fretin
frekar fullur og freðin
týndir eru mínir sokkar
ætla að synda út hafið
beygja, kreppa,
sundur, saman
sundið kennt af þeim
sem að börðust við
að halda mér í kafi
ég er unglingsbleikja
sem vil heilan á mér steikja
ég er unglingsbleikja
og sit hér einn að reykja
og mér líður vel.
Mér líður vel.
Lofa ábyrgð
stimpla mig í heiminn
setja háleit markmið
en þori ekki í geiminn
gulur, rauður, grænn og blár
litir sem valda því oft
að það leki nokkur tár
ég er unglingsbleikja
sem vil heilan á mér steikja
ég er unglingsbleikja
og sit hér einn að reykja
og mér líður vel.
Mér líður vel.
Hvað á ég að verða
þegar ég verð orðinn stór
svo að mamma og pabbi
upplifi mig nóg
eftir fjórtán ár
af áróðri og dellu
frá öllum þeim
sem hindranir mér settu
ó dreptu mig núna
áður en ég myrði einhvern
og missi alla trúna
ég er unglingsbleikja
sem vil heilann á mér steikja
ég er unglingsbleikja
og sit hér einn að reykja
ég er unglingsbleikja
sem vil heilann á mér steikja
ég er unglingsbleikja
og sit hér einn að reykja
og mér líður vel.
Mér líður vel.
[af plötunni Hipsumhaps – Lög síns tíma]