Hvað er að?

Hvað er að
(Lag og texti: Fannar Ingi Friðþjófsson)

Hvað er að,
spyrð þú mig að.
Ekkert svar
svo ég kem mér út.
Ég verð bara að
drekka’ og gleyma mér um stund.

Þú þolir ei
þegar ég kem heim
eftir geim
í fylgd með löggum tveim
því ég hef ekkert sjeim.
Reyndu’ ekki að segja mér til neins.

Finnst stundum lífið taka byltu
og allt vera’ að fara’ á annan enda,
þá forða ég mér í líki fyllibyttu
því það er það eina sem að ég kann að elda.
Mig hefur alltof lengi dreymt um
að lifa lífi án þess að þurfa’ að reyna svindla.
Hvað er að.

Þó það sé margt
í mínar hendur lagt
að þá er svart
að líta til framtíðar.
Ég reyni’ að lifa spart
en allt er svo rándýrt marr.

Og þú veist ég er
bara að vera ég
en ég sé
þú ert skíthrædd um hvað
verði um drenginn þinn
því hann er ekki með neitt plan.

Finnst stundum lífið taka byltu
og allt vera’ að fara’ á annan enda,
þá forða ég mér í líki fyllibyttu
því það er það eina sem að ég kann að elda.
Mig hefur alltof lengi dreymt um
að lifa lífi án þess að þurfa’ að reyna svindla.
Hvað er að.

En mamma mín,
það mun koma tíð.
Ég lofa því
strax eftir þessa hríð.
Lífið er ævintýr’
og eftir storminn sólin skín.
Trúðu því.
Trúðu því.
Mamma mín.

[af plötunni Hipsumhaps – Best gleymdu leyndarmálin]