
Shady Owens
Átta afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag:
Trommuleikarinn og Stuðmaðurinn Ásgeir Óskarsson er sjötíu og tveggja ára í dag. Hljómsveitalisti trymbilsins er líklega með þeim lengri í bransanum en Ásgeir hafði leikið með mörgum bítla- og hippasveitum áður en að Stuðmannaævintýrinu kom, þar má nefna Scream, Fjörefni, Terso, Arfa, Trix, Andrew, Menninguna, Apple, Paradís, Pelican og Eik. Í seinni tíð hefur hann leikið með hljómsveitum eins og Þursaflokknum, Tamlasveitinni, Icecross, Ástarkveðju, The Riot, Specials, Sunnan 3, Trap, Vinum Dóra, Þremur á palli, Auknum þrýstingi, Gullkistunni, Bandinu hans pabba, Grúsk, Fánum, Danshljómsveit Vilhjálms Guðjónssonar, Bítladrengjunum blíðu og Vönum mönnum. Þá er ótalin sólóferill Ásgeirs sem telur nokkrar plötur.
Eðlisfræðingurinn Andri Guðmundsson hljómborðsleikari er fjörutíu og þriggja ára gamall í dag. Andri var hljómborðsleikari Írafárs en hann lék einnig um tíma með hljómsveitinni Landi og sonum. Hann hefur nú snúið sér að annars konar verkefnum og býr og starfar í Svíþjóð í dag.
Hafliði Þórir Jónsson píanóleikari átti þennan afmælisdag. Hafliði var fæddur á þessum degi árið 1918 og hóf að koma fram opinberlega um sautján ára aldur en hann starfaði við píanóleik nánast fram í andlátið 2014. Hann lék með fjölmörgum danshljómsveitum en starfaði einnig sem undirleikari kóra, óperusöngvara og annarra skemmtikrafta eins og t.d. Ómars Ragnarssonar, þá lék hann mikið í brúðkaupum og jarðarförum auk þess sem hann var virkur í félags- og réttindamálum tónlistarmanna.
Bragi Þór Valsson söngvari og kórstjórnandi er fjörutíu og sjö ára gamall á þessum degi. Bragi spratt fyrst fram á sjónarsviðið sem einn af Rokklingunum en var síðar einn af Smaladrengjunum sem skemmti víða með söng og hljóðfæraleik, hann hefur einnig fengist við kórstjórnun og má nefna Samkór Kópavogs og Samkór Mýramanna í því samhengi en hefur einnig stjórnað fleiri kórum

Þorkell Sigurbjörnsson
Þá á rapparinn Elvar Gunnarsson einnig afmæli en hann fagnar fjörutíu og þriggja ára afmæli á þessum degi. Elvar rappaði með ýmsum sveitum í kringum aldamótin og má þar m.a. nefna Afkvæmi guðanna og XXX Rottweiler en hann hefur einnig gengið undir nöfnunum Hr. Kaldhæðinn og Seppi. Hann starfar í dag sem kvikmyndagerðarmaður.
Söngkonan Shady Owens (Patricia Gail Owens) á ennfremur afmæli í dag en hún er sjötíu og sex ára gömul. Shady söng mörg af þekktustu lögum Hljóma og Trúbrots hér fyrir margt löngu en áður hafði hún sungið með Óðmönnum, síðar söng hún einnig með Hljómsveit Guðmundar Steingrímssonar, Náttúru og Póker hér á landi. Shady söng aukinheldur inn á fjölmargar plötur hér á landi s.s. með Mezzoforte, Þorgeiri Ástvaldssyni, Gunnars Þórðarsyni og Rúnari Júlíussyni.
Einnig hefði tónskáldið Þorkell Sigurbjörnsson átt afmæli í dag en hann lést árið 2013. Þorkell (f. 1938) nam sín fræði hér heima, í Bandaríkjunum og í Þýskalandi, kenndi á píanó, stjórnaði kórum og kenndi tónsmíðar enda samdi hann margar af perlum íslenskra sönglaga auk annarra verka, þekkast verka hans er án efa sálmurinn Heyr himnasmiður. Þorkell lét sig einnig félagsmál tónlistarmanna varða, var t.a.m. í stjórn Listahátíðar, Musica Nova og formaður Tónskáldafélags Íslands.
Að síðustu er hér nefndur Karl Lilliendahl gítarleikari en hann lést árið 2002. Karl fæddist á þessum degi 1933 og lék með sveitum eins og Neo tríóinu, Hljómsveit Aage Lorange og Hljómsveit Jan Morávek auk þess að reka sveit í eigin nafni. Hann lék ennfremur inn á fjölda platna hér á árum áður eins og með Ómari Ragnarssyni, Alfreð Clausen, SAS tríóinu, Soffíu og Önnu Siggu og Hjördísi Geirs svo fáeinar séu nefndar.
Vissir þú að Grétar Örvarsson lék með hljómsveitinni Tilbreytingu á Höfn í Hornafirði á sínum yngri árum?














































