
Elín Ósk Óskarsdóttir
Afmælisbörn Glatkistunnar eru að þessu sinni þrjú talsins:
Rangæingurinn Elín Ósk Óskarsdóttir söngkona er sextíu og fjögurra ára gömul í dag. Hún nam fyrst píanóleik og söng í heimabyggð en síðan í Reykjavík, á Ítalíu og Bretlandseyjum, hún starfaði um tíma á Ítalíu en mestmegnis hér heima þar sem hún hefur t.a.m. sungið ýmis óperuhlutverk. Söng Elínar er að finna á fjölmörgum plötum en nokkrar þeirra hafa komið út undir hennar nafni.
Einar Vigfússon sellóleikari (fæddur 1927) átti einnig afmæli á þessum degi en hann lést 1973. Einar var einn af íslenskum frumkvöðlum í sellóleik, var t.d. fyrsti sellóleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og konsertmeistari um tíma. Hann starfaði einnig við kennslu og var fyrsti leiðbeinandi fjölmargra síðari tíma sellóleikara. Einar starfaði að félagsmálum tónlistarmanna, var í stjórn bæði FÍT og FÍH.
Annar sellóleikari, Örnólfur Kristjánsson er sextíu og þriggja ára gamall á þessum degi. Örnólfur nam hér heima og í Bandaríkjunum, hefur sinnt kennslu um árabil bæði hér á Íslandi og í Danmörku og hefur starfað með hljómsveitum eins og Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík og Nýja kvartettnum, þá hefur hann jafnframt leikið inn á ótal plötur með fjölbreytilegum hópi tónlistarfólks.
Vissir þú að Hörður Áskelsson organisti lék eitt sinn Eurovision stefið á kirkjuklukkur Hallgrímskirkju?














































