
Arnór Dan Arnarson
Fjórir tónlistarmenn koma við sögu í afmælisdagbók Glatkistunnar að þessu sinni:
Jón Gústafsson fyrrum tónlistar- og fjölmiðlamaður er sextíu og tveggja ára gamall í dag. Jón var þekktastur á níunda áratug síðust aldar sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi en hann sá um tónlistarþætti eins og Rokkarnir geta ekki þagnað og Popphólfið, hann lék einnig á hljómborð, trommur og fleiri hljóðfæri í hljómsveitum eins og Gaulverjum, Afris og Sonus futurae auk þess að gefa út sólóskífu.
Arnór Dan Arnarson söngvari Agent fresco fagnar einnig afmæli á þessum degi en hann er fertugur í dag og á því stórafmæli. Agent fresco er auðvitað í fremstu röð en Arnór hefur einnig starfað með tónlistarmönnum eins og Ólafi Arnalds, Björgvini Halldórssyni og Retro Stefson svo dæmi séu tekin.
Þá á Ingi Gunnar Jóhannsson sextíu og sjö ára afmæli í dag. Ingi Gunnar var auðvitað í Hálfu í hvoru og Islandicu en hefur einnig starfað með Vísnavinum, Texastríóinu og Vox, og poppað reglulega upp í undankeppnum Eurovision og Landslaginu einnig þegar það var og hét. Ingi Gunnar hefur sent frá sér eina sólóplötu, Undir fjögur augu (1992).
Síðastur afmælisbarna á þessum degi er Gunnar Hólm Tryggvason hljómborðs-, bassa- og gítarleikari (1942-2014) en hann var í fjölmörgum hljómsveitum norðan heiða (og sunnan) og hér má nefna sveitir eins og Hljómsveit Pálma Stefánssonar, Tilfelli, Danssveitina Cantabile, Drengina og Dísu, Úthljóð, Casablanca, Póló og svo Hljómsveit Gunnars Tryggvasonar svo nokkur dæmi séu nefnd. Gunnar lék jafnframt inn á nokkrar plötur.
Vissir þú að eitt sinn starfaði í Vestmannaeyjum hljómsveit sem hét Opin buxnaklauf?














































