
Ásthildur Ákadóttir
Að þessu sinni eru fimm afmælisbörn á skrá Glatkistunnar.
Jófríður Ákadóttir er þrjátíu og eins árs gömul í dag en hún hefur komið ótrúlega víða við í tónlistinni. Jófríður vakti fyrst athygli með Pascal Pinon í Músíktilraunum og síðan aftur með Samaris sem sigraði reyndar keppnina 2011 en báðar sveitirnar hafa sent frá sér nokkrar plötur. Þá á Jófríður einnig að baki sólóferil undir nafninu JFDR og hefur gefið út plötur undir því nafni.
Tvíburasystir Jófríðar, Ásthildur Ákadóttir hljómborðs- og píanóleikari er eðli málsins samkvæmt einnig þrjátíu og eins árs á þessum degi en hún starfar einnig í hljómsveitinni Pascal pinon sem í dag er dúett. Ásthildur hefur starfað með fjöldanum öllum af öðru tónlistarfólki og þar á meðal má nefna dúettinn Hungry dragon sem sigraði tónlistarkeppnina Kammer 6: tónlistarhátíð unga fólksins árið 2014.
Tónskáldið Tryggvi M. (Marteinn) Baldvinsson fagnar í dag stórafmæli, nánar tiltekið sextugs afmæli. Platan Gömul ljósmynd: sönglög eftir Tryggva M. Baldvinsson, leit dagsins ljós árið 2006 en lög hans hafa komið út á ótal plötum annarra listamanna. Tryggvi hefur jafnframt unnið til verðlauna fyrir tónverk ársins í flokki sígildrar tónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum og unnið til fjölda annarra verðlauna.
Þá er hér einnig nefndur trommuleikarinn Rafn Haraldsson (f. 1947) sem lék með mörgum þekktum og óþekktum hljómsveitum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, hér eru nefndar sveitir eins og Toxic, 5-pence, Flowers, Grástakkar, Náttúra, Persona, Haukar og Frugg. Rafn lést af slysförum 1981 aðeins þrjátíu og fjögurra ára gmall.
Og að síðustu er hér í afmælisbörnum dagsins nefnd Akureyringurinn Svanhildur Sumarrós Leósdóttir (1940-2009) sem m.a. starfrækti hljómsveitir í eigin nafni sem léku víða um norðanvert landið, hún var virk í félagsstarfi harmonikkuunnenda fyrir norðan og söngfélögum og kórastarfi einnig og gaf út tvær plötur sem að einhverju leyti höfðu að geyma frumsamda tónlist.














































