Hörður Hákonarson (1938-2021)

Hörður Hákonarson

Hörður Hákonarson ljósmyndari var harmonikkuleikari og lagahöfundur sem ekki fór mikið fyrir en hann vann í nokkur skipti til verðlauna í danslagakeppnum sem haldnar voru sjötta og sjöunda áratugnum, og reyndar einnig síðar.

Hörður var Reykvíkingur, fæddur 1938 og var um sextán ára gamall þegar hann hóf að nema harmonikkuleik hjá Karli Jónatanssyni harmonikkuleikara og um svipað leyti eignaðist hann sína fyrstu harmonikku, hann lærði hjá Karli í um tvö ár og svo einnig hjá Georg Kulp og tónfræði hjá dr. Hallgrími Helgasyni. Hörður lék eitthvað lítið opinberlega á nikkuna en var þó með hljómsveit í eigin nafni haustið 1960, sem þó lék líklega aðeins einu sinni á balli. Um sama leyti var hann eitthvað að kenna sjálfur á hljóðfærið. Hann lék líklega ekki mikið eftir þetta enda voru þá nýjar áherslur að banka á dyrnar í tónlistinni, hann varð þó aftur virkur í harmonikkusamfélaginu þegar félög voru stofnuð undir lok áttunda áratugarins og lék hann ásamt öðrum inn á plötu Félags harmonikuunnenda í Reykjavík – Á ferð og flugi með harmonikuunnendum, en hún kom út árið 1996.

Hörður var fyrst og fremst lagahöfundur þegar kom að tónlistinni, hann sendi oft inn lög í danslagakeppnir SKT og Félags íslenskra hljóðfæraleikara og vann þá til verðlauna, hér má nefna lögin Gunnuræl árið 1958 og Dansgleði (polki) árið 1961 (við texta Núma Þorbergs) en lögin sem hann sendi inn í keppnirnar voru mun fleiri og keppti hann þar bæði í flokki gömlu og nýju dansanna. Þegar slíkar keppnir voru endurvaktar á níunda áratugnum undir yfirskriftinni Danslagakeppni Hótel Borg, þá var hann einnig meðal keppenda og átti lag (Dansað á Borginni) á plötunni Danslagakeppni Hótel Borg (1986) og varð svo í þriðja sæti sömu keppni árið 1988 með lagið Sjómannapolki (við texta Jóns Sigurðssonar).

Hörður Hákonarson lést vorið 2021 á áttugasta og þriðja aldursári sínu.