Afmælisbörn 28. ágúst 2025

Magnús Þór Sigmundsson

Fimm afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi:

Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður er sjötíu og sjö ára gamall í dag. Magnús Þór er auðvitað kunnastur fyrir samstarf sitt með Jóhanni Helgasyni, sbr. Magnús & Jóhann, en saman störfuðu þeir líka sem Pal brothers og í hljómsveitinni Change. Magnús Þór hefur ennfremur gefið út fjöldann allan af sólóplötum og þar af eru nokkrar ætlaðar börnum. Mörg laga Magnúsar Þórs hafa notið mikilla vinsælda og meðal þeirra má nefna Blue jean queen, Ást, Álfar, Dag sem dimma nátt, Pósturinn Páll, Jörðin sem ég ann og Ísland er land þitt, sem allir þekkja.

Hörður G. Ólafsson bassaleikari og lagahöfundur úr Skagafirðinum fagnar sjötíu og tveggja ára afmæli á þessum degi. Hörður samdi m.a. lagið Eitt lag enn, sem Stjórnin flutti í úrslitum Eurovision keppninnar 1990 í Júgóslavíu en hann hefur aukinheldur gefið út sólóefni. Hörður hefur starfað í ýmsum hljómsveitum, á meðal þeirra má nefna Styrmingu, Norðan 3, Herramenn, Stöff, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar og Neista.

Austfirðingurinn Hallgrímur Bergsson er sextíu og sjö ára í dag. Hallgrímur var söngvari og hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Eglu á Fáskrúðsfirði en hefur einnig starfað með sveitum eins og Orfeus, Standard, Nostal og Musical nature. Hann hefur jafnframt unnið töluvert við sólóefni á síðustu árum.

Þá á Leó Geir Torfason gítarleikari sjötíu og eins árs afmæli á þessum degi. Leó hefur leikið með hljómsveitum af ýmsu tagi og þeirra þekktust er líklega Miðaldamenn en einnig má nefna sveitir eins og Bóleró, Golíat, Vöku, Búddabítlana og Blúsbrot. Leó sendi frá sér sólóplötuna Draumsýn árið 1995.

Og hér er að síðustu nefndur tónlistarmaðurinn Atli Finnsson sem í dag fagnar tuttugu og fimm ára afmæli sínu. Atli hefur starfað með fjölda hljómsveita og hér má nefna Sideproject, Final snack, Tiny cali girls, Pink pons, Þrír kallinn big boys og Tobolsk catwalk orchestra, flestar þessara sveita hafa sent frá sér efni og sumar gefið út plötur.