Afmælisbörn 6. nóvember 2025

Jónas Sen

Í dag eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Jónas Sen fagnar sextíu og þriggja ára afmæli í dag. Jónas er píanóleikari, tónskáld og tónlistargagnrýnandi og hefur fengist við tónlist af ýmsu tagi, hann gaf t.d. út plötu með píanóverkum fyrir um tveimur áratugum og hefur einnig gefið út plötu með söngkonunni Ásgerði Júníusdóttur en hefur í auknum mæli snúið sér að raftónlist, sem m.a. hefur komið út á safnplötum.

Halldór Bragason blúsari (fæddur 1956) eða bara Dóri Braga hefði átt afmæli í dag en hann lést árið 2024. Allir þekkja hljómsveit hans, Vini Dóra sem hefur gefið út fjölda platna en hann lék einnig með fjölda blússveita s.s. Landsliðinu, The Riot, Blúsboltunum og Big nós band og var í forsvari fyrir blústónlist hér á landi ásamt fleirum, Dóri var kjörinn heiðursfélagi Blúshátíðar í Reykjavík 2013.

Þá hefði Sveinn (Valdemar) Ólafsson tónlistarmaður einnig átt afmæli á þessum degi en hann lést árið 1987. Sveinn (fæddur 1913) sem var menntaður fiðluleikari og lærði síðar bæði á saxófón og lágfiðlu, lék m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands og strengjasveitinni Fjarkanum auk þess að spila með léttari sveitum eins og Hljómsveit Aage Lorange og Hljómsveit Þóris Jónssonar, var þó öllu þekktari fyrir félagsmálastörf sín í þágu tónlistarinnar en hann var m.a. formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna um tíma.

Að síðust er hér nefndur Guðjón Bjarnason kórstjórnandi (fæddur á þessu degi 1898) en hann var líklega þekktastur fyrir að stofna og stjórna Sólskinsdeildinni, sem var vinsæll barnakór og starfaði um miðja öldina. Guðjón stofnaði fleiri slíka kóra og má nefna stúlknakórinn Svölurnar o.fl. Þá samdi hann einnig barnalög og eru lögin Ég langömmu á og Stína og brúðan meðal þeirra. Guðjón lést árið 1983.