Aretha Franklin – heiðurstónleikar

Stefanía Svavarsdóttir og Elísabet Ormslev stíga á svið í gervi Arethu Franklin og flytja ódauðleg lög drottningar sálartónlistarinnar í Ölveri þann 20. nóvember nk. klukkan 20. Með sér hafa þær frábæra hljómsveit skipuð úrvals tónlistarfólki sem skapar magnaðan hljóðheim og ógleymanlega stemningu.

Aretha Franklin (1942–2018) var ein áhrifamesta og ástsælasta söngkona allra tíma. Hún hóf feril sinn í gospel, en blandaði síðar saman soul, jazz, blues og poppi á einstakan hátt. Hún var fyrirmynd kvenna víða um heim, með rödd sem hafði bæði kraft og næmni, og hlaut viðurnefnið “The Queen of Soul”. Með helstu lögum sínum, á borð við Respect, Think, Chain of Fools, I Say a Little Prayer og (You Make Me Feel Like) A Natural Woman, skapaði Aretha tónlistararf sem lifir áfram með nýjum kynslóðum.

Hljómsveitina skipa:

Trommur: Fúsi Óttars
Bassi: Róbert Þórhallsson
Hljómborð: Birgir Þórisson
Gítar og hljómsveitarstjórn: Bent Marinósson
Básúna: Samúel Jón Samúelsson
Trompet: Snorri Sigurðarson
Saxófónar: Björgvin Ragnar Hjálmarsson
Bakraddir: Íris Lind Verudóttir og Ragna Björg Ársælsdóttir

Ekki missa af þessari einstöku tónlistarveislu!

Miðasala á tix.is