Afmælisbörn 13. desember 2025

Lísa Pálsdóttir

Í dag eru þrír tónlistarmenn á skrá Glatkistunnar sem eiga afmæli:

Lárus Halldór Grímsson tónskáld, hljómsveitastjórnandi og hljómborðs- og flautuleikari er sjötíu og eins árs gamall í dag. Hann nam hér heim og í Hollandi, lék með mörgum hljómsveitum hér á árum áður s.s. Sjálfsmorðssveit Megasar, Súld, Með nöktum, Þokkabót, Eik og Deildarbungubræðrum og lék þ.a.l. á plötum þeirra og margra annarra líka. Lárus hefur einnig gefið út nokkrar sólóplötur og er líklega þekktust þeirra platan Hringurinn sem kom út 1986. Hann hefur einnig stýrt lúðrasveitum eins og Lúðrasveit Reykjavíkur o.fl.

Lísa Pálsdóttir söng-, leik- og dagskrárgerðarkona er sjötíu og tveggja ára gömul á þessum degi, Lísa starfaði lengi við dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu en söng hér fyrr með hljómsveitinni Kamarorghestum, sem starfaði mestmegnis í Kaupmannahöfn. Einnig hefur hún sungið með hljómsveitunum Sköpum og Slow-Beatles.

Tónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn á svo þrjátíu og þriggja ára afmæli í dag. Unnur Sara hefur komið nokkuð víða við í tónlistinni, var t.a.m. í hljómsveitunum Litla lampanum og Líparít og söngkvartettnum Fushigi four. Hún útskrifaðist frá tónlistarskóla FÍH 2015 og hefur sent frá sér sólóplötur, hún hefur jafnframt látið sig varða réttindamál tónlistarfólks.